Kona gengur með 12bura

Þetta er tekið af vísi.is

 

Kona í Túnís mun brátt ala 12 börn, eftir því sem breska blaðið The Sun fullyrðir. Konan, sem er kennari, á von á sex drengjum og sex stúlkum.

Breskir kvensjúkdómalæknar hafa staðfest við The Sun að slík meðganga sé möguleg en mjög hættuleg. Konan hefur ekki verið nafngreind en hún hefur sagt læknum að hún hlakki til að faðma öll börnin sín tólf. Hún er sögð vera heilsuhraust en stöðugt er fylgst með henni.

Túnísk heilbrigðis- og félagsmálayfirvöld segjast ætla að aðstoða konuna og barnsföður hennar með ýmsum hætti.

 

Aumingja konan, það er nógu erfit að ganga með eitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband